Samantekt um þingmál

Heilbrigðisþjónusta

439. mál á 150. löggjafarþingi.
Heilbrigðisráðherra.

Markmið

Að laga lög um heilbrigðisþjónustu að þingsályktun um heilbrigðisstefnu til 2030 sem Alþingi samþykkti í júní 2019 þannig að lögin endurspegli áherslur heilbrigðisstefnunnar.

Helstu breytingar og nýjungar

Frumvarpið felur í sér nýja þriggja flokka sundurgreiningu á heilbrigðisþjónustu og skilgreiningar á verksviðum hvers flokks fyrir sig. Einnig eru í frumvarpinu breytingar á ákvæðum laga um heilbrigðisþjónustu um stjórn heilbrigðisstofnana og um Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri. Í frumvarpinu er gengið út frá því að lög um heilbrigðisþjónustu séu rammalöggjöf um skipulag heilbrigðisþjónustu í landinu.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum.

Aðrar upplýsingar

Þingsályktun, nr. 29/149, um heilbrigðisstefnu til ársins 2030.


Síðast breytt 26.06.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.